Hópar
Ertu að skipuleggja hópferð? Vantar þig ómótstæðilegt tilboð? Við erum alltaf reiðubúin til að aðstoða þig við að skipuleggja draumahópferðina hvernig sem hópurinn þinn er samsettur.
Sama hvort um er að ræða vinnu- eða skemmtiferð, nú eða einfaldlega ferð á einhvern ofboðslega skemmtilegan viðburð. Við hjálpum þér að skipuleggja og pakka ferðinni saman. Það getur jú verið lúmskt flókið að skipuleggja ferð fyrir stóran hóp fólks en það er hins vegar eitt af því skemmtilegasta sem við gerum!
ATH - Til að við getum gert ykkur tilboð þá þarf lágmarksfjöldinn að vera 10 fullorðnir.
Ekki hika við að hafa samband við okkur á netfangið hopar@wow.is og svo getið þið alltaf slegið á þráðinn - síminn er 590 3000.
